29.09.26 - 10:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pochettino: Höfum lifað í gegnum tímabil blekkingar

Mauricio Pochettino.

Mynd: EPA

Fyrir utan Etihad-leikvanginn, heimavöll Manchester City.

Mynd: EPA

Pochettino er í dag landsliðsþjálfari Bandaríkjanna.

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino.

Mynd: EPA
Mauricio Pochettino, fyrrverandi stjóri Tottenham og Chelsea, segir að niðurstaðan í máli Manchester City hafi valdið miklum skaða fyrir enskan fótbolta.
Fyrir helgi var greint frá því að City hefði verið fundið sekt í 114 af 115 ákærum sem sneru að brotum á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Félagið hefur hafnað niðurstöðunni og hyggst áfrýja.

„Hver sem refsingin verður er ómögulegt að snúa tímanum til baka. Þetta hefur valdið miklum skaða,“ sagði Pochettino sem er í dag landsliðsþjálfari Bandaríkjanna.
„Mörg félög fylgdu reglunum og önnur gerðu það ekki. Við gengum í gegnum tímabil þar sem íþróttaleg sanngirni var ekki til staðar.“
Pochettino, sem stýrði Southampton, Tottenham og Chelsea á tímabilinu sem rannsóknin nær yfir, segir sérstaklega erfitt að vita hvernig hægt sé að bæta fyrir það sem gerst hefur.
„Hvernig lagar maður allt sem skemmdist vegna þessa? Ef það er rétt að allar þessar 114 reglur hafi verið brotnar þá höfum við lifað í gegnum tímabil blekkingar.“
Pochettino rifjaði einnig upp tíma sinn hjá Tottenham og segir það undarlegt hversu ólíkt félög hafi upplifað fjármálareglur úrvalsdeildarinnar.
„Hvar voru eftirlitskerfin? Það er það sem vekur athygli mína. Ég man eftir því að hjá Tottenham vorum við að byggja nýjan leikvang og höfðum ekki fjárhagslegt svigrúm til að kaupa leikmenn í 18 mánuði. Reglurnar voru mjög strangar gagnvart okkur en líka mjög vægar gagnvart öðrum. Þess vegna segi ég að þetta sé allt mjög undarlegt," segir Pochettino.