Fotbolti.net
29.09.26 - 10:00
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu Zidane tryllast yfir sigurmarkinu - „Veit ekki einu sinni hvað ég gerði“

Sjáðu Zidane tryllast yfir sigurmarkinu - „Veit ekki einu sinni hvað ég gerði“
Canon

Mynd: EPA

Frakkinn Zinedine Zidane tapaði sér gersamlega í gleðinni þegar Michael Olise skoraði sigurmark franska landsliðsins í 1-0 sigri á Belgíu í gær.
Zidane: Ég elska þessa týpu af leikmanni
TENGT EFNI

Zidane: Ég elska þessa týpu af leikmanni

Zidane var í leit að öðrum sigri sínum sem þjálfari franska landsliðsins og hafði sett nokkrar af stóru byssunum inn á.

Olise kom inn og reyndist hetjan. Hann fékk boltann á eigin vallarhelmingi, keyrði framhjá einum varnarmanni og upp að vítateignum áður en hann skoraði sigurmarkið með laglegu skoti.

Markið hreif Zidane svo mikið að hann hljóp fagnandi að bolta sem lá ofan á keilu og hamraði í hann á meðan hann fagnaði eins og óður maður.

„Ég veit ekki einu sinni hvað ég gerði,“ sagði Zidane og hló, en hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.