Það er ekki nema vika síðan Kemar Roofe bætti met í Evrópudeildinni þegar hann skoraði frá miðlínu í leik með Rangers.
Það met var slegið af Jordi Gomez, fyrrum leikmanni Wigan og Sunderland, í kvöld. Gomez er leikmaður Omonia á Kýpur. Liðið leikur á móti PSV þessa mundina.
Mark Gomez kom á 29. mínútu. Brotið var á samherja Gomez rétt fyrir aftan miðlínu og boltinn rúllaði aðeins til baka. Gomez, sem er fyrirliði Omonia, var fljótur að átta sig og lét vaða og skoraði yfir Yvon Mvogo sem var of framarlega í marki PSV.
Markið er frábært en þeð má þó spyrja sig að því hvort boltinn sé alveg hreyfingarlaus þegar Gomez lætur vaða.

Smelltu hér til að sjá markið
56 - The goal scored by Jordi Gómez for Omonia Nicosia against PSV was from a distance of 56 metres, the furthest distance ever for a goal scored in the UEFA Europa League, beating last week's record by Kemar Roofe (@RangersFC) Madness. pic.twitter.com/ga04xOn3qT
— OptaJohan (@OptaJohan) October 29, 2020
Athugasemdir