Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 29. nóvember 2020 19:25
Ívan Guðjón Baldursson
Milo áfram með KF (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
KF er búið að staðfesta að Slobodan Milisic mun halda þjálfun liðsins áfram næstu tvö árin.

Milo er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við félagið en hann gerði frábæra hluti í sumar og bjargaði KF frá falli.

Fyrir tímabilið var KF spáð falli af öllum þjálfurum í 2. deild nema einum. Þess í stað endaði liðið um miðja deild, með 26 stig úr 20 leikjum.

Það er því mikið gleðiefni fyrir KF að Milo hafi ákveðið að vera áfram í Fjallabyggð.

Milo tók við KF þegar liðið var í 3. deild 2017 og kom þeim upp í fyrra.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner