Fotbolti.net
29.11.26 - 14:10
Brynjar Ingi Erluson

Segir að Freyr verði kynntur til leiks á miðvikudag

Segir að Freyr verði kynntur til leiks á miðvikudag
Canon

Mynd: Rosenborg

Freyr Alexandersson er á leið til Swansea í ensku B-deildinni og hefur Graham Thomas hjá DragonSports greint frá því hvenær félagið hyggst tilkynna ráðningu hans.
Championship: Verðandi lærisveinar Freys unnu öruggan sigur í erkifjendaslag
TENGT EFNI

Championship: Verðandi lærisveinar Freys unnu öruggan sigur í erkifjendaslag

Swansea er að leggja lokahönd á viðræður við Rosenborg um Frey og er talið að samkomulag sé á næsta leiti.

Freyr kvaddi stuðningsmenn Rosenborg með frábærum sigri á Molde í gær og tryggði liðinu svo gott sem Evrópusæti fyrir næsta tímabil.

Hann tók við Rosenborg þegar liðið var í miklum vandræðum og sat í neðri hluta deildarinnar, en undir hans stjórn tókst því að snúa blaðinu við og ná þriðja sætinu eftir ótrúlegan viðsnúning.

Nú liggur leið Freys í ensku B-deildina og samkvæmt Thomas verður hann kynntur sem nýr stjóri Swansea á miðvikudaginn.

Freyr tekur við Swansea á afar góðum tíma, en Ashley Williams endaði tíma sinn sem bráðabirgðastjóri með 3-0 sigri á erkifjendunum í Cardiff í dag.

Swansea situr nú í sjöunda sæti B-deildarinnar með 30 stig og stefnir á að blanda sér í baráttuna um sæti í ensku úrvalsdeildinni.


Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough18+1235
2Wolves18+1235
3West Brom18+1135
4Stoke City18+735
5Birmingham18+1332
6Southampton18+1831
7Swansea18+630
8QPR18+729
9Blackburn18+128
10West Ham18+1427
11Sheffield Utd18+627
12Norwich18+926
13Portsmouth18+226
14Wrexham18025
15Bolton18-921
16Charlton Athletic18-820
17Bristol City18-1119
18Millwall18-718
19Cardiff City18-818
20Watford18-1516
21Lincoln City18-1616
22Burnley18-1014
23Preston NE18-1313
24Derby County18-2111
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.