29.11.26 - 12:32
Brynjar Ingi Erluson
Stuðningsmenn Swansea treysta því að Freyr sé rétti kosturinn - „Ég fyrirgef öllum“

Freyr Alexandersson

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Rosenborg

Stuðningsmenn Swansea City voru spurðir álits á væntanlegri ráðningu Freys Alexanderssonar, sem er að taka við af Vitor Matos eftir að sá síðarnefndi sagði starfi sínu lausu á dögunum.

TENGT EFNI
Freysi kvaddi með tárin í augunum
Viðræður Swansea við Rosenborg eru á lokastigi og er búist við því að Freyr verði kynntur til leiks á næstunni.
BBC ræddi við stuðningsmenn Swansea fyrir leikinn gegn Cardiff í dag og spurði þá út í væntanlega ráðningu Freys.
„Ég veit bara það sem ég hef lesið um hann og séð í fréttunum, en ef ég á að vera hreinskilinn veit ég ekki mikið um hann. Ég treysti eigendunum, þeir hafa verið duglegir að finna góða stjóra að undanförnu og vonandi heldur það áfram,“ sagði einn stuðningsmaðurinn.
Hann var þá spurður út í ummæli Freys frá árinu 2024, þegar hann lýsti yfir áhuga á að taka við Cardiff, erkifjendum Swansea.
„Ef hann byrjar illa gæti þetta alveg komið honum í koll, en ég er fljótur að fyrirgefa. Svo lengi sem hjartað er á réttum stað og hann leggur sig allan fram fyrir félagið skiptir þetta mig engu máli.“
Annar stuðningsmaður tók í svipaðan streng og sagðist treysta félaginu fullkomlega þegar kemur að því að velja nýjan stjóra.
„Ég hef ekki heyrt mikið um hann, en vonandi hefur félagið fundið rétta manninn og hann stendur undir væntingum.“
Stuðningsmennirnir virðast almennt sammála um að Swansea hafi staðið sig vel í að finna hæfa stjóra undanfarin ár, þótt þeir hafi ekki alltaf verið lengi hjá félaginu.
„Enginn einn maður er stærri en félagið og það kemur alltaf einhver annar í staðinn. Ef það er eitthvað sem við höfum gert vel að undanförnu þá er það að velja stjóra. Margir þeirra hafa síðan farið til stærri félaga, en mér fannst Vitor Matos hafa yfirgefið okkur of snemma.“
Annar stuðningsmaður tók undir það og sagði að vandamálið væri ekki að finna góða stjóra, heldur að halda þeim.
„Ég treysti félaginu til að taka rétta ákvörðun. Við höfum staðið okkur ágætlega í að finna góða stjóra, en vandamálið er að við missum þá alltaf,“ sagði einn í lokin.

Swansea City fans have had their say on Vitor Matos’ departure and the anticipated appointment of Freyr Alexandersson ??
— BBC Sport Wales (@BBCSportWales) November 29, 2026
#bbcfootball #swanseacity https://t.co/n8nErhyBnl

Mynd: Rosenborg
Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Middlesbrough | 18 | +12 | 35 |
| 2 | Wolves | 18 | +12 | 35 |
| 3 | West Brom | 18 | +11 | 35 |
| 4 | Stoke City | 18 | +7 | 35 |
| 5 | Birmingham | 18 | +13 | 32 |
| 6 | Southampton | 18 | +18 | 31 |
| 7 | QPR | 18 | +7 | 29 |
| 8 | Swansea | 18 | +3 | 28 |
| 9 | Blackburn | 18 | +1 | 28 |
| 10 | West Ham | 18 | +14 | 27 |
| 11 | Sheffield Utd | 18 | +6 | 27 |
| 12 | Norwich | 18 | +9 | 26 |
| 13 | Portsmouth | 18 | +2 | 26 |
| 14 | Wrexham | 18 | 0 | 25 |
| 15 | Bolton | 18 | -9 | 21 |
| 16 | Charlton Athletic | 18 | -8 | 20 |
| 17 | Cardiff City | 18 | -5 | 19 |
| 18 | Bristol City | 18 | -11 | 19 |
| 19 | Millwall | 18 | -7 | 18 |
| 20 | Watford | 18 | -15 | 16 |
| 21 | Lincoln City | 18 | -16 | 16 |
| 22 | Burnley | 18 | -10 | 14 |
| 23 | Preston NE | 18 | -13 | 13 |
| 24 | Derby County | 18 | -21 | 11 |