Fotbolti.net
29.12.14 - 23:44
Ívan Guðjón Baldursson

Irvine rekinn frá West Brom (Staðfest)

Irvine rekinn frá West Brom (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Búið er að staðfesta brottrekstur Alan Irvine úr stjórastarfinu hjá West Bromwich Albion sem er einu stigi frá fallsæti.

Irvine hefur aðeins tekist að skrapa saman 17 stig úr 19 fyrstu leikjum tímabilsins sem er svipaður árangur og hjá liðinu í fyrra, þegar það endaði þremur stigum fyrir ofan fallsæti með 36 stig úr 38 leikjum.
West Brom tapaði fyrir Stoke í síðustu umferð og sungu stuðningsmenn söngva um að Irvine yrði rekinn í fyrramálið.

Næsti leikur West Brom er á útivelli gegn West Ham á nýársdag og er Tim Sherwood talinn líklegastur til að taka við keflinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.