Fotbolti.net
30.01.15 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Jay Spearing til Blackburn (Staðfest)

Jay Spearing til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur fengið miðjumanninn Jay Spearing á láni frá nágrönnum sínum í Bolton.

Spearing kom til Bolton frá Liverpool í ágúst árið 2012.

Spearing byrjaði vel hjá Bolton og var gerður að fyrirliða liðsins en undanfarna mánuði hefur hann fengið fá tækifæri.

Hann mun nú leika með Blackburn á láni út tímabilið.
Hinn 26 ára gamli Spearing má samkvæmt lánssamningnum ekki spila með Blackburn þegar liðið mætir Bolton 7. mars og hann er einnig ólöglegur í enska bikarnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.