Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
„Vorum ekkert sérlega ánægðar með það“
„Vissi að pressan kæmi þegar ég tók við sem þjálfari Breiðabliks“
Myndir: Grétar heppinn að fá ekki rautt?
„Okkur var líka spáð falli í fyrra og við afsönnuðum það“
Efstur á óskalista leikmanna - „Þakklátur og smá meyr“
   þri 30. mars 2021 13:05
Hafliði Breiðfjörð
„Þegar maður hugsar um þetta þá fær maður ennþá skjálfta í hnén"
Icelandair
Arnar Þór Viðarsson í leik með íslenska landsliðinu á sínum tíma.
Arnar Þór Viðarsson í leik með íslenska landsliðinu á sínum tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari, var í liði Íslandssem tapaði 3-0 gegn Liechtenstein árið 2007. Oft er talað um leikinn sem þann versta í sögu íslenska landsliðsins en Ísland heimsækir Liechtenstein á ný í undankeppni HM annað kvöld.

„Ég og Eiður Smári erum í hópi 18-20 leikmanna sem töpuðu gegn Liechtenstein og maður er ekki stoltur af því. Við höfum látið leikmenn vita að þetta er hópur sem þú vilt ekki bætast í," sagði Arnar við Fótbolta.net í dag.

„Þetta eru ekki góðar minningar. Ég og Eiður Smári töluðum um þetta fyrir nokkrum dögum. Þegar maður hugsar um þetta þá fær maður ennþá skjálfta í hnén. Maður skammaðist sín. Það væri mjög vel þegið að hefna þess á morgun."

„Maður man ennþá eftir þessu tapi og fær skjálfa í líkamann. Þá veit maður að þetta var ekki gott. Maður man ekki eftir mörgum tapleikjum en ég man að þetta var leikur þar sem við sóttum mikið en þeir skoruðu beint í vinkilinn úr fyrstu sókn. Þetta var einn af þessum leikjum þar sem ekkert gekk upp."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar ræðir Arnar meira um lið Liechtenstein, leikinn á morgun og Lars Lagerback.
Slapp
banner
banner
banner