Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
   mán 30. mars 2026 16:30
Kári Snorrason
„Áður sótt markvörð úr HK og orðið meistarar“
Arnar Freyr Ólafsson hefur staðið í marki KR í síðustu leikjum.
Arnar Freyr Ólafsson hefur staðið í marki KR í síðustu leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Ingvi Traustason gekk til liðs við KR frá Norrköping í vetur.
Arnór Ingvi Traustason gekk til liðs við KR frá Norrköping í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Ég held að það sé alveg skýrt að Arnar Freyr byrji mótið í markinu. Við höfum áður sótt markvörð úr HK og orðið Íslandsmeistarar, við skulum ekki gleyma því,“ sögðu KR-ingarnir tveir, Valur Páll Eiríksson og Hilmar Örn Hafsteinsson, í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net aðspurðir um markvarðarstöðu Vesturbæinga.

„Við erum að taka Beiti (Ólafsson) á þetta. Hann er betri í löppunum en ég hélt og stýrir vörninni vel, það fer mikið fyrir honum. Halldór (Snær Georgsson) á eftir að sýna að hann sé á KR-klassa,“ sagði Valur Páll.

Hilmar tók því næst til máls: „En honum var enginn greiði gerður með því hvernig liðið spilar. Mér finnst þetta góður leikmaður, ég hef ekkert slæmt að segja um hans frammistöður.“

„Hann þarf að læra og þroskast. Það er erfitt sem ungur markvörður að vera settur í þessa stöðu. Það er meira en að segja það,“ sagði Valur jafnframt.

Arnór púslið sem vantaði
„Mér finnst að Arnór Ingvi hafi verið akkúrat týpan sem vantaði í liðið. Einhver til að vera djúpur á miðjunni og heldur utan um allt. Gæinn er leiðtogi, hann er búinn að vera fyrirliði í Norrköping og er púslið sem vantaði,“ sagði Valur Páll.

Varnarleikur KR hefur verið skrautlegur undir stjórn Óskars og höfðu þeir Valur og Hilmar báðir áhyggjur af varnarleiknum. Hins vegar voru þeir báðir spenntir fyrir Birgi Steini Styrmissyni og höfðu þeir trú á að hann gæti stigið upp.

„Vonandi nær Birgir að halda sér heilum. Þegar Gregg Ryder var með liðið þá var liðið nánast búið að halda hreinu allt undirbúningstímabilið með Birgi og Finn Tómas í vörninni. Þegar að Axel (Óskar Andrésson) kemur dettur Birgir úr myndinni. En hann hafði sýnt á undirbúningstímabilinu að hann og Finnur virka vel saman,“ sagði Valur að lokum.
Niðurtalningin - Skála í kampavíni af öðru tilefni í sumar
Slapp
Athugasemdir
banner
banner