Fotbolti.net
30.03.26 - 15:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið U21 - Tvær breytingar frá örugga sigrinum og Yoro með bandið

Leikur gegn sterku liði Frakka 17:00

Viktor Bjarki og Daníel áfram saman frammi.

Viktor Bjarki og Daníel áfram saman frammi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenska U21 landsliðið mætir því franska klukkan 17:00 á Stade Abbé-Deschamps í Auxerre.

Leikurinn er liður í undankeppni EM 2027.

Frakkar eru á toppi riðilsins en Ísland er í öðru sæti. Stöðuna í riðlinum má sjá hér neðst.

Lúðvík Gunnarsson, þjálfari íslenska liðsins, gerir tvær breytingar frá 6-2 sigrinum gegn Eistum á fimmtudag.

Daníel Freyr Kristjánsson kemur inn fyrir Baldur Kára Helgason í vinstri bakverðinum og Kjartan Már Kjartansson kemur inn fyrir Tómas Orra Róbertsson á miðjuna.

Viktor Bjarki og Daníel Tristan eru áfram saman í fremstu línu.

Hjá Frökkum er Leny Yoro, leikmaður Manchester United, í byrjunarliðinu og með fyrirliðabandið.
Lestu um leikinn: Frakkland U21 2 - 1 Ísland U21
Leikurinn verður í beinni útsendingu á SÝN Sport Ísland og í textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Byrjunarlið Frakkland U21

  • 16. Robin Risser (m)
  • 2. Leny Yoro
  • 8. Chimuanya Ugochukwu
  • 9. Steve Ngoura
  • 13. Christian Mawissa
  • 15. Nathan Zeze
  • 17. Dehmaine Assoumani
  • 18. Mamadou Coulibaly
  • 20. Ayyoub Bouaddi
  • 21. Jaydee Canvot
  • 22. Noe Lebreton

Byrjunarlið Ísland U21

  • 1. Lúkas Petersson (m)
  • 2. Hlynur Þórhallsson
  • 4. Logi Hrafn Róbertsson
  • 7. Ágúst Orri Þorsteinsson
  • 9. Daníel Tristan Guðjohnsen
  • 10. Gísli Gottskálk Þórðarson
  • 18. Kjartan Már Kjartansson
  • 19. Róbert Frosti Þorkelsson
  • 20. Viktor Bjarki Daðason
  • 22. Daníel Freyr Kristjánsson
  • 23. Nóel Atli Arnórsson
Kjartan Már kom mjög vel inn í íslenska liðið á fimmtudag þegar hann kom inn á í hálfleik.

Kjartan Már kom mjög vel inn í íslenska liðið á fimmtudag þegar hann kom inn á í hálfleik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Leny Yoro er fyrirliði franska liðsins

Leny Yoro er fyrirliði franska liðsins

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Frakkland6+1716
2Sviss7+514
3Ísland7+511
4Færeyjar7-79
5Lúxemborg6-74
6Eistland7-132
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.