Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
Adam Páls: Nú er farið að taka okkur alvarlega
Hemmi Hreiðars: Það var bara samningsatriði
Siggi Höskulds: Skoruðum löglegt mark
Óskar Hrafn: Meiri taugaspenna að hafa KR áhorfendur bak við sig
Jökull: Það er enginn ánægður í okkar klefa með frammistöðuna
   fim 30. apríl 2026 22:27
Snæbjört Pálsdóttir
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Kvenaboltinn
Fyrirliðinn Álfhildur Rósa Kjartansdóttir var hæstánægð með sigurinn í kvöld
Fyrirliðinn Álfhildur Rósa Kjartansdóttir var hæstánægð með sigurinn í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur vann dramatískan 2-1 sigur á FH á heimavelli í kvöld þar sem sigurmarkið kom seint í leiknum. Fyrirliðinn Álfhildur Rósa Kjartansdóttir var að vonum ánægð með niðurstöðuna.

„Bara ótrúlega glöð, ánægð með sigurinn. Við þurftum þvílíkt að berjast fyrir þessu og að fá svona sigurmark í lokin bara gerir þetta ennþá sætara.“


Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 -  1 FH

Þróttur lenti undir í leiknum en Álfhildur segir að trúin hafi aldrei horfið.

„Já alltaf finnst mér. Það er rosalega góður liðsandi í liðinu. Við stöndum alltaf saman og berjumst þar til á lokasekúndu.“

„Fyrri hálfleikurinn var kannski ekkert sérstakur hjá okkur þannig við bara töluðum saman inn í klefa og ætluðum að standa okkur betur og mér fannst við gera það.“

Álfhildur segir liðið hafa lært af síðasta leik.

„Við vitum alveg hvað við erum góðar í og gerum það mjög vel. Það var kannski pínu stress í Blikaleiknum. Vorum að fara svolítið út fyrir það sem við kunnum, gerum og erum góðar í.“

Hún var ekki í vafa um tilfinninguna þegar sigurmarkið kom.

„Þetta er bara alltaf einhvern veginn ólýsandi tilfinning og að vinna fótboltaleiki bara. Þess vegna er maður í þessu. Þetta er ógeðslega gaman og sérstaklega svona mark einhvern veginn í lokin bara geggjuð tilfinning.“

FH-liðið reyndist erfitt viðureignar í kvöld.

„Bara erfitt, mjög erfiður leikur og þær eru ógeðslega góðar í fótbolta. Alltaf einhvern veginn mikil barátta og já við þurftum að vinna fyrir þessu.“


Slapp
banner
banner