Arna Sif Ásgrímsdóttir lék allan leikinn er Þór/KA tapaði óvænt gegn nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur í annari umferð Bestu deildarinnar í dag.
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 2 - 1 Þór/KA
Þór/KA náði forystunni í fyrri hálfleik en heimakonur snéru leiknum sér í hag og skoruðu dramatískt sigurmark á 92. mínútu.
„Tilfinningin er ömurleg, þetta eiginlega gerist ekki verra," sagði Arna Sif í viðtali að leikslokum.
„Það vantaði eins og einn eða tvo gíra í okkur. Í fyrri hálfleik vorum við að koma okkur í margar, margar góðar stöður en fórum illa með þær. Við leyfðum þeim svolítið að halda boltanum því þær spila með háa varnarlínu og skilja mikið pláss eftir bakvið sig. Við tókum vondar ákvarðanir og framkvæmdum hlutina illa. Við komumst oft í stöður þar sem vantaði meiri vilja, það vantaði drápseðlið.
„Við vissum að þetta yrði slagur og töldum okkur alveg vera tilbúnar í hann en okkur vantaði aðeins uppá. Aðeins meiri vilja til að berja meira á þeim af því að við vissum að þær myndu berja á okkur. Þetta var bara gaman og það var lélegt að nýta sénsana okkar ekki betur."
Hulda Björg Hannesdóttir þurfti að fara meidd af velli á lokamínútum leiksins sem gæti hafa haft áhrif á hugarfar Akureyringa.
„Við lendum í ótrúlega leiðinlegu atviki undir restina og ég veit ekki hvort það hafi slegið okkur útaf laginu. Það er alltaf ömurlegt þegar liðsfélagi meiðist og maður veit ekki alveg hvað það er. Ég veit ekki hvort það hafi riðlað okkur aðeins. Við slökktum á okkur í smá."
Þór/KA er með eitt stig eftir tvær umferðir.























