Grindavík/Njarðvík 2 - 1 Þór/KA
0-1 Erin Flurey ('10)
1-1 Natasha Moraa Anasi ('62)
2-1 Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('93)
0-1 Erin Flurey ('10)
1-1 Natasha Moraa Anasi ('62)
2-1 Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('93)
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 2 - 1 Þór/KA
Grindavík/Njarðvík tók á móti Þór/KA í fyrri leik dagsins í Bestu deild kvenna. Þar mættust sameinuð félög í spennandi slag í 2. umferð tímabilsins.
Akureyringar náðu forystunni snemma leiks þegar Margrét Árnadóttir slapp innfyrir vörnina og lagði boltann á Erin Flurey sem kláraði af stuttu færi.
Það var nokkuð jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik þar sem þau skiptust á að sækja og fengu bæði færi til að bæta mörkum við, en tókst ekki.
Gestirnir voru óheppnir að tvöfalda ekki forystuna í upphafi síðari hálfleiks og var refsað fyrir slaka færanýtingu þegar Natasha Moraa Anasi skoraði. Natasha skoraði eftir að stöllur hennar unnu boltann af Bríeti Jóhannsdóttur á hættulegum stað.
Þór/KA var áfram sterkara liðið en átti í erfiðleikum með að nýta þær góðu stöður og þau færi sem sköpuðust. Þess í stað refsuðu heimakonur með marki í uppbótartíma. Sigríður Emma Jónsdóttir potaði boltanum yfir marklínuna eftir atgang í kjölfar hornspyrnu.
Lokatölur urðu því 2-1 fyrir Grindavík/Njarðvík sem er með þrjú stig eftir tvær fyrstu umferðirnar. Þór/KA er með eitt stig.


