Þróttur R. 2 - 1 FH
0-1 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('42)
1-1 Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir ('58)
2-1 Kayla Marie Rollins ('84)
0-1 Berglind Freyja Hlynsdóttir ('42)
1-1 Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir ('58)
2-1 Kayla Marie Rollins ('84)
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 1 FH
Þróttur og FH áttust við í stórleik í Bestu deild kvenna en þessi lið voru í harðri baráttu um annað sæti deildarinnar í fyrra.
Það var mikið fjör í Laugardalnum þar sem heimakonur héldu boltanum betur í fyrri hálfleiknum á meðan FH sótti hratt og fékk bestu færin. Berglind Freyja Hlynsdóttir skoraði úr einu slíku til að ná forystunni á 42. mínútu, eftir frábært samspil við Ingibjörgu Magnúsdóttur.
FH leiddi í leikhlé en Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir jafnaði metin snemma í síðari hálfleik eftir góða sókn. Kayla Rollins og Sigríður voru báðar í góðu skotfæri en Sigríður var í betri stöðu og nýtti færið með því að skora gott mark.
Staðan var þá orðin 1-1 og komust bæði lið í góðar stöður til að ná forystunni áður en Kayla kom boltanum í netið á lokakaflanum. Kayla slapp í gegn eftir langa sendingu frá Mist Funadóttur sem átti einnig þátt í jöfnunarmarki Þróttar.
Þetta reyndist sigurmark leiksins, lokatölur 2-1. Þróttur er því með þrjú stig eftir tvær umferðir en FH situr eftir með eitt stig.


