Hannah McLaughlin lék allan leikinn er nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur unnu frækinn sigur á heimavelli gegn Þór/KA Í Bestu deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Grindavík/Njarðvík 2 - 1 Þór/KA
Hún er á sínu fyrsta tímabili í íslenska boltanum og svaraði spurningum að leikslokum.
„Þetta var mjög skemmtilegur leikur og við spiluðum vel sem liðsheild. Við sköpuðum mikið af færum og að gera sigurmark svona seint í leiknum er rúsínan í pylsuendanum," sagði Hannah.
„Þetta var mjög góður leikur hjá báðum liðum en í lokin fannst mér eins og við værum ákafari og vildum sigurinn meira. Það er frábært að vera komin með stig á töfluna en mér fannst eins og við hefðum líka getað fengið eitthvað úr leiknum í fyrstu umferð. Það er stórkostlegt að byrja á sigri í fyrsta heimaleik liðsins á þessum velli.
„Þessi sigur gefur okkur mikið sjálfstraust fyrir næstu leiki."
Grindavík/Njarðvík er með þrjú stig eftir tvær umferðir í deild þeirra bestu, en liðið tapaði naumlega 2-1 á útivelli gegn Val í fyrstu umferð.























