Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Alexander Rafn Pálmason (KR)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hver þarf Pálma Rafn ef maður hefur Xavi Simons sem fyrirmynd?
Hver þarf Pálma Rafn ef maður hefur Xavi Simons sem fyrirmynd?
Mynd: EPA
Sá efnilegasti.
Sá efnilegasti.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
hálf vorkenndi bara Arnari að þurfa hlusta á þetta tuð
hálf vorkenndi bara Arnari að þurfa hlusta á þetta tuð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kóngurinn.
Kóngurinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Absolute cinema.
Absolute cinema.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grunsamlegt sms.
Grunsamlegt sms.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pálmi Rafn Pálmason.
Pálmi Rafn Pálmason.
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Alexander Rafn Pálmason varð haustið 2024 yngsti leikmaður í sögu efstu deildar og vorið 2025 varð hann sá yngsti til að byrja leik og skora í deildinni. Alexander er gríðarlegt efni og er þegar búið að samþykkja tilboð frá Nordsjælland og mun miðjumaðurinn halda til Danmerkur í sumar.

Alexander hefur þegar spilað þrettán leiki fyrir yngri landsliðin og til þessa á tímabilinu hefur hann skorað tvö mörk í fjórum leikjum í Bestu deildinni. Hann hefur byrjað síðustu tvo leiki og í dag sýnir hann á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Alexander Rafn Pálmason

Gælunafn: Oftast bara Lexi eða Alex

Aldur: 16

Hjúskaparstaða: Föstu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Spilaði fyrsta leikinn tímabilið 2024 á móti Skaganum, var nú ekki langur leikur fyrir mig kom inn á seinustu mín en ætli það sé ekki frekar minnisstætt að maður varð yngstur í sögunni

Uppáhalds drykkur: Epla Bon aqua er nammi

Uppáhalds matsölustaður: Úff verða vera tveir. Saffran og Dominos deila þessu

Uppáhalds tölvuleikur: FIFA er eini leikurinn sem ég get eitthvað smá í, verður að vera hann

Áttu hlutabréf eða rafmynt: niii

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Prison break er stuuurlað, mæli með

Uppáhalds tónlistarmaður: Bieberinn by far

Uppáhalds hlaðvarp: Hlusta ekki á hlaðvörp…

Uppáhalds samfélagsmiðill: Insta. Doomscrollið a Tik Tok up there samt

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fótbolti.net

Fyndnasti Íslendingurinn: Gillz alltaf. Verð reyndar að gefa Loga Páli shout, hef gaman af honum

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst:
Blessaður, er þetta vinur matta kjeld?, hvernig kem eg mer i samband við þann efnilega, myndarlega KÓNG? Frá random númeri. Til í að setja allt sem ég á, á að þetta var hann sjálfur…

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Helvíti Ólíklegur í Val

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Eduardo Biondini einhver Ítali, eini sem mig dettur í hug hann var flottur

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Óskar Hrafn

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Tómas Orri var rosalegur á mánudaginn hálf vorkenndi bara Arnari að þurfa hlusta á þetta tuð

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Pabbi og Xavi Simons, var hrifinn af honum, en síðan fór hann í Tottenham…

Sætasti sigurinn: Sigur á Tyrklandi til að vinna Telki cup var skemmtilegur

Mestu vonbrigðin: Dettur ekkert í hug

Uppáhalds lið í enska: Arsenal

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Lowkey engan

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Siggi Breki

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Amin Cosic rugl fallegur

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Rakel Grétarsdóttir

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: ekki yellow fyrir að fara úr treyjunni, tilgangslaus regla ekki það að hún trufli mig eitthvað samt…

Uppáhalds staður á Íslandi: Seltjarnarnesið og Vesturbærinn er ekkert að fara mikið út fyrir það

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: skoraði beint úr aukaspyrnu semi frá miðju í úrslitaleiknum á Iber cup, ætla ekki að ljúga var ekki beint að skjóta ætlaði bara setja hann á fjær og hann for akkúrat stöngin inn á fjær…

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: nee var mikið í því en er hættur öllu núna

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já fylgist soldið með körfunni og síðan í des og Jan fylgist ég alltaf með pílunni og handboltanum

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: samfélags og náttúrufræði og það allt bull.

Vandræðalegasta augnablik: Stand up í nýliðavígslunni hjá mér var mögulega eitt það versta, fókusaði of mikið á góðan söng í laginu og steingleymdi að græja uppistandið…

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Neymar, Lamine Yamal og Ryan Cherki láta þá kenna mer einhver skills við matarborðið þarf að bæta lockerinn

Bestur/best í klefanum og af hverju: Dóri, er bara kóngurinn

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Amin Cosic í Love Island væri absolute cinema.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Fékk ör a hægra auga eftir að detta á bekk í leikskóla, þremur vikum seinna datt ég á sama bekk og fékk á hitt augað…

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Amin Cosic er gufu ruglaður, hann er búinn að fá alltof mörg shout í þessu.

Hverju laugstu síðast: Að mömmu og pabba að ég setti í vél, amma kom og gerði það ;)

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Hlaup án bolta, gotta do what you gotta do

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Arteta hvað RUGL er í gangi

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Búin að vera sturluð stúka so far. Hlakka til að sjá ykkur halda því áfram í sumar!
Slapp
banner
banner
banner