Þróttur vann 2-1 sigur á FH á heimavelli sínum í kvöld í skemmtilegum leik þar sem Mist Funadóttir var valin maður leiksins. Mist átti stóran þátt í sigrinum en hún lagði upp sigurmark Þróttar.
„Bara geggjað sko, þetta er bara frábær tilfinning. Bara frábært að vinna á heimavelli, fullt af fólki í stúkunni og bara geðveikt.“
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 1 FH
Mist segir stoðsendinguna hafa verið aðeins öðruvísi en hún lagði upp með.
„Já ég var bara að miða alveg þarna á frábærum stað. Ég svona ætlaði að hreinsa en svona þetta var nákvæm hreinsun.“
FH-liðið veitti Þrótti mikla mótspyrnu en Mist segir það alltaf krefjandi að mæta þeim.
„Þær eru bara ótrúlega kraftmiklar og góðir leikmenn í þessu FH liði. Þannig það er alltaf ógeðslega erfitt að spila á móti þeim.“
„Við bara spiluðum okkar leik fannst mér í dag og náðum að stýra vel á köflum.“
Þróttarar komu sterkari til leiks eftir tap gegn Breiðabliki í síðustu umferð og Mist segir breytinguna hafa legið í hugarfarinu.
„Við vorum bara svolítið grimmari. Það var ekki jafn mikið stress, þetta var fyrsti leikurinn á móti Breiðablik. Svona komum grimmari og náðum að nýta færin okkar betur.“
Stemningin í hópnum er einnig góð samkvæmt Mist.
„Hún er bara ótrúlega góð og náttúrulega erum bara svipaður hópur og var í fyrra. Vildum bara byggja ofan á það og þetta er bara búið að vera ótrúlega góður hópur. Ótrúlega skemmtilegar stelpur og allir góðir vinir.“























