FH tapaði 2-1 gegn Þrótti í kvöld í hörkuleik þar sem sigurmarkið kom undir lokin. Markvörðurinn Aldís Guðlaugsdóttir var svekkt eftir leik en segir þó að margt jákvætt megi taka með sér.
„Við vorum alveg yfir í baráttu og alveg góð bæting eftir síðasta leik. Þetta eru bara smáatriði sem við þurfum að púsla aðeins betur saman og aðeins skerpa á.“
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 1 FH
„Svo fannst mér ég líka, ég átti stóra ábyrgð í þessu. Mér fannst ég eiga þessa bolta og vanalega myndi ég taka þá en ekki í dag greinilega.“
„Mér finnst alltaf gaman að spila, það er gaman þegar það er hátt tempó og góð gæði. Mér finnst alltaf gaman að spila á móti Þrótti. Það eru sterkir mótherjar og væri skemmtilegra að vinna.“
Hún segir hópinn sterkan, sérstaklega með ungu leikmönnunum sem eru að koma upp.
„Það var smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára."
„Bara bravó á stelpurnar sem eru að koma úr ÍH og eru að stíga inn núna fyrstu skrefin í meistaraflokknum. Þær eru bara búnar að standa sig eins og hetjur. Þær eru líka þindarlausar, þær geta hlaupið endalaust.“
„Það er bara góð stemming í hópnum, þurfum að linka aðeins betur inn á vellinum en utan vallar eru allar mjög góðar vinkonur.“
FH hefur aðeins náð einu stigi úr fyrstu tveimur leikjum en Aldís segir liðið vita hvað þarf að bæta.
„100% við vitum að við eigum að gera miklu betur. Við vitum alveg hvað við þurfum að laga og við þurfum bara að gera það.“

























