Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
   fim 30. apríl 2026 15:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Var Óskar að opinbera byrjunarliðið? - Skaut á Rosenior
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Gauti meiddist á æfingu í dag.
Eiður Gauti meiddist á æfingu í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Ingvi verður ekki með gegn Val.
Arnór Ingvi verður ekki með gegn Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það má í raun segja að Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, hafi svo gott sem gefið upp byrjunarliðið sitt fyrir leikinn gegn Val í Bestu deildinni á laugardag þegar hann ræddi við Fótbolta.net í dag.

Óskar sagði frá því í viðtalinu að Arnór Ingvi Traustason og Eiður Gauti Sæbjörnsson væru meiddir. Inn í þeirra stað kæmu Stefán Árni Geirsson og Orri Hrafn Kjartansson.

„Það er slatti af meiðslum. Birgir (Steinn Styrmisson) er ekki enn kominn til baka, Hjalti (Sigurðsson) er að jafna sig og það er töluvert langt í hann þó hann hafi verið í hóp síðast. Arnór Ingvi meiddist á móti FH og verður líklega ekki með gegn Val. Eiður Gauti meiddist á æfingu í dag og verður líklega ekki með á móti Val."

„Það er bara eins og það er. Þetta eru auðvitað mikilvægir leikmenn en Orri Hrafn og Stefán Árni koma inn fyrir þá og ég treysti þeim fullkomlega til að leysa þá af hólmi. Þetta er bara hluti af þessu. Menn þurfa að fá tækifæri til að stíga upp og hafa ábyrgð."

Bara búinn að ákveða byrjunarliðið og opinbera það?

„Liam Rosenior hefði kannski getað hugað að því áður en hann eyddi öllu púðrinu í því að eltast við þá sem voru að leka byrjunarliðinu út úr klefanum hjá Chelsea að allir þeir sem vilja vita byrjunarliðið hjá KR munu vita það í síðasta lagi á morgun eftir æfingu. Allir þeir sem hafa áhuga á því. Unga kynslóðin í dag þegir ekki yfir neinu, það eru allir að tala við alla. Ég sé ekki tilganginn í því að reyna að breiða yfir eitthvað eða villa um fyrir mönnum. Staðan er bara svona. Kannski mun Eiður Gauti á ótrúlegan hátt rísa upp en ég sé það ekki gerast í dag."


Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Slapp
banner
banner
banner