RB Salzburg varð austurrískur bikarmeistari eftir auðveldan 5-0 sigur á Austria Lustenau í úrslitaleiknum í gær.
Leikmenn Salzburg fögnuðu sigrinum saman að leikslokum og fengu að hampa titlinum en gættu sín að virða tveggja metra regluna í fagnaðarlátunum.
Þetta er í sjöunda sinn sem Salzburg hampar austurríska bikarnum en það gerðist í fyrsta sinn 2012. Allir bikarsigrar félagsins hingað til hafa verið partur af bikartvennu með sigri í deild en Salzburg er með þriggja stiga forystu á LASK Linz í toppbaráttunni.
LASK var með þriggja stiga forystu en missti sex stig í refsingarskyni fyrir að brjóta sérstakar æfingareglur sem gerðar voru fyrir Covid-19.
RB Salzburg lift the ÖFB Cup while exercising social-distancing measures. from r/soccer
Athugasemdir