Alphonso Davies, 25 ára leikmaður Bayern München, er í 26 manna hópi Kanada fyrir HM. Davies er að jafna sig eftir meiðsli aftan í læri og er í kapphlaupi við tímann til að verða klár í fyrsta leik Kanada á mótinu, sem verður gegn Bosníu 12. júní.
Davies gat aðeins spilað þrettán leiki með Bayern í Bundesligunni á þessu tímabili og hefur verið frá síðan hann meiddist í tapi Bæjara gegn PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Davies gat aðeins spilað þrettán leiki með Bayern í Bundesligunni á þessu tímabili og hefur verið frá síðan hann meiddist í tapi Bæjara gegn PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Jonathan David, sóknarmaður Juventus, er einnig meðal nafna í kanadíska hópnum og hefur landsliðsþjálfarinn Jesse Marsch tröllatrú á sínu liði.
„Þetta er besti landsliðshópur sem Kanada hefur getað sett saman í sögunni. Það eru ekki allir í hópnum 100% heilir en þeir eru nálægt því. Við trúum því að við verðum sterkari eftir því sem á mótið mun líða," segir Marsch.
Kanada hefur aldrei unnið leik á HM en er einn af gestgjöfum mótsins í ár og spilar alla leiki sína í riðlakeppninni á heimavelli. Auk Bosníu eru Katar og Sviss í riðlinum.
HM hópur Kanada:
Markverðir: Dayne St Clair (Inter Miami), Maxime Crepeau (Orlando City), Owen Goodman (Crystal Palace).
Varnarmenn: Alistair Johnston (Celtic), Derek Cornelius (Marseille), Richie Laryea (Toronto), Niko Sigur (Hajduk Split), Joel Waterman (Chicago Fire), Luc de Fougerolles (Fulham), Moise Bombito (Nice), Alphonso Davies (Bayern München), Alfie Jones (Middlesbrough).
Miðjumenn: Stephen Eustaquio (Porto), Ismael Kone (Sassuolo), Tajon Buchanan (Villarreal), Mathieu Choiniere (Los Angeles FC), Ali Ahmed (Norwich City), Nathan Saliba (Anderlecht), Liam Millar (Hull City), Marcelo Flores (Tigres UANL), Jacob Shaffelburg (Toronto), Jonathan Osorio (Toronto).
Sóknarmenn: Jonathan David (Juventus), Cyle Larin (Southampton), Tani Oluwaseyi (Villarreal), Promise David (Union SG).
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




