Fotbolti.net
30.06.21 - 14:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Andri og Birkir hætta með ÍBV (Staðfest)

Andri og Birkir hætta með ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Andri Ólafsson og Birkir Hlynsson eru ekki lengur þjálfarar kvennaliðs ÍBV.
ÍBV var að senda frá sér fréttatilkynningu og í henni segir: „Andri Ólafsson, Birkir Hlynsson og ÍBV hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um starfslok þeirra sem þjálfarar meistaraflokksliðs ÍBV í Pepsi Max deild kvenna."

„Tóku þeir við liðinu haustið 2019 og hafa stýrt því í eitt og hálf tímabil. ÍBV vill þakka þeim fyrir vel unnin störf í þágu félagsins, en þeir skilja við liðið í 6. sæti deildarinnar."

Fram kemur einnig að það séu „persónulegar ástæður" fyrir þessari ákvörðun.

ÍBV tapaði í gær 2-1 fyrir Þrótti á heimavelli í leik þar sem þær klúðruðu tveimur vítaspyrnum. Næsti leikur ÍBV er gegn Fylki næsta þriðjudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.