30.06.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Guðni Sigþórs í Magna (Staðfest)

Guðni Sigþórsson er kominn í Magna

Mynd: Magni

Guðni Sigþórsson er kominn í Magna

Mynd: Magni
Grenvíkingurinn Guðni Sigþórsson er kominn aftur heim í Magna frá Þór en þetta kemur fram í tilkynningu frá Magnamönnum.
Guðni, sem er fæddur árið 1999, fór frá Magna í Þór þegar hann var tólf ára gamall.
Hann hefur síðan þá spilað 69 leiki og skorað 8 mörk í deild- og bikar með Þór.
Guðni lék 7 leiki með Þór í Lengjudeildinni í sumar en er nú farinn aftur heim í Magna og samið til næstu tveggja ára.
Magni hefur verið í brasi í 2. deildinni í sumar og situr í 9. sæti með aðeins 9 stig eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni á síðasta ári.