30.06.21 - 10:15
Elvar Geir Magnússon
Kári Péturs aftur í KFG (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Félagaskiptaglugginn hér á landi var að opna í dag.
Kári Pétursson hefur verið lánaður úr Stjörnunni í 3. deildarliðið KFG.
Kári, sem er 24 ára, hefur komið við sögu í sex leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar. Þetta er í þriðja sinn sem hann gengur í raðir KFG.

Árið 2019 lék hann með HK í Pepsi Max-deildinni og sumarið 2018 skoraði hann fimm mörk í sex leikjum með HK í næstefstu deild. Kári, sem er uppalinn í Stjörnunni, hefur einnig leikið með Skínanda og Leikni á sínum ferli.
KFG er í fimmta sæti 3. deildarinnar en aðeins þrjú stig eru upp í annað sætið.
Fjallað er vel um félagaskipti í neðri deildum í hlaðvarpsþættinum Ástríðan sem kom inn í morgun. Hægt er að hlusta á þáttinn í hlaðvarpveitum eða í spilaranum hér að neðan.