30.06.21 - 11:30
Elvar Geir Magnússon
KF fær þrjá - KA lánar Ými í Magna (Staðfest)

Ýmir Már Geirsson er lánaður í Magna.

Mynd: Hulda Margrét

Ýmir Már Geirsson er lánaður í Magna.

Mynd: Hulda Margrét
Félagaskiptaglugginn hér á landi var að opna í dag.
KF hefur fengið til sín tvo leikmenn. Áki Sölvason kemur á láni frá KA en hann hefur komið við sögu í tveimur leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar. Í fyrra lék þessi 22 ára leikmaður hjá Dalvík/Reyni og hjá Magna árið þar á undan.
KF er í sjöunda sæti 2. deildarinnar en liðið hefur einnig fengið lánsmann frá Þór Akureyri. Það er Nikola Kristinn Stojanovic, tvítugur miðjumaður sem hefur komið við sögu í einum leik í Lengjudeildinni í sumar.
Fjallað er vel um félagaskipti í neðri deildum í hlaðvarpsþættinum Ástríðan sem kom inn í morgun. Hægt er að hlusta á þáttinn í hlaðvarpveitum eða í spilaranum hér að neðan.
Í þættinum segir að Vitor Vieira Thomas, leikmaður Víkings Ólafsvíkur, sé einnig á leiðinni í KF.

Þá hefur Magni Grenivík, sem er í níunda sæti 2. deildarinnar, fengið bakvörðinn Ými Má Geirsson lánaðan frá KA. Ýmir er 23 ára og hefur ekki fengið tækifæri hjá KA í sumar.
Hann lék 20 leiki með Magna í 2. deildinni 2017 þegar hann var lánaður til félagsins.