30.06.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Leipzig kaupir leikmann NY Red Bulls (Staðfest) - Lánaður út leiktíðina

Leipzig er að fá Bandaríkjamann

Mynd: Getty Images

Leipzig er að fá Bandaríkjamann

Mynd: Getty Images
Þýska félagið RB Leipzig gekk í gær frá kaupum á bandaríska leikmanninum Caden Clark en hann kemur frá New York Red Bulls. Hann verður lánaður til Red Bulls út tímabilið í MLS-deildinni.
Clark er 18 ára gamall sóknartengiliður og hefur spilað feykivel með aðalliði Red Bulls síðustu tvö tímabil.
Hann hefur skorað 4 mörk í 8 leikjum á þessu tímabili og þá lagt upp 1 mark.
Clark mun ganga til liðs við Leipzig eftir tímabilið en hann er annar leikmaðurinn á tveimur árum sem fer frá Red Bulls til Leipzig.
Tyler Adams samdi við Leipzig árið 2019 og hefur reynst þeim mikilvægur.