30.06.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Marseille kaupir bandarískan landsliðsmann frá Barcelona (Staðfest)

Konrad De La Fuente verður í treyju númer 20 hjá Marseille

Mynd: Marseille

Franska félagið Marseille samdi í gær við bandaríska landsliðsmanninn Konrad de la Fuente. Hann gerir fjögurra ára samning.
De La Fuente er 19 ára gamall vængmaður en Barcelona hafði ekki í hyggju að framlengja samning hans sem átti að renna út á næsta ári.
Félagið ákvað því að selja hann til Marseille fyrir 3 milljónir evra en Barcelona fær kauprétt á leikmanninum.
De La Fuente vann sér inn sæti í bandaríska landsliðinu í nóvember á síðasta ári.
Marseille hafnaði í 5. sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð og spilar því í Evrópudeildinni á komandi tímabili.