Fotbolti.net
30.06.21 - 19:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Nuno Santo tekinn við Tottenham (staðfest)

Nuno Santo tekinn við Tottenham (staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leit Tottenham af nýjum stjóra er lokið. Nuno Espirito Santo er tekinn við sem stjóri félagsins en hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Jose Mourinho var rekinn sem stjóri Tottenham á síðustu leiktíð og Ryan Mason tók þá við tímabundið. Síðan þá hefur liðið verið í leit að nýjum stjóra.

Antonio Conte, Mauricio Pochettino, Paulo Fonseca, Gennaro Gattuso og Julen Lopetegui hafa allir verið orðaðir við stöðuna ásamt því að það hafa verið fréttir um að Santo væri í viðræðum.

Nú er það staðfest og mun hann skrifa undir tveggja ára samning en hann sagði upp sem stjóri Wolves eftir liðna leiktíð eftir fjögur ár í starfi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.