Fotbolti.net
30.06.21 - 10:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Patson Daka í Leicester (Staðfest)

Patson Daka í Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leicester hefur gengið frá kaupum á sóknarmanninum Patson Daka. Hann kemur til félagsins frá Salzburg í Austurríki.
Talað er um að kaupverðið sé 23 milljónir punda.

Daka er bara 22 ára gamall en hann skoraði 34 mörk í 42 keppnisleikjum með Salzburg á síðustu leiktíð, þar á meðal 27 í 28 deildarleikjum.

Á pappír líta þetta út fyrir að vera frábær félagaskipti en það verður spennandi að fylgjast með leikmanninum í uppáhalds deild flestra Íslendinga næsta vetur.

Leicester hafnaði í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.