Fotbolti.net
30.06.21 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Prskalo til Reynis - Njarðvík fær Aron frá Fram (Staðfest)

Ivan Prskalo.

Ivan Prskalo.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Félagaskiptaglugginn hér á landi var að opna í dag.

Króatíski sóknarmaðurinn Ivan Prskalo er kominn aftur í íslenska boltann en hann hefur gengið í raðir Reynis Sandgerði. Prskalo lék með Njarðvík 2019 og 2020 en í fyrra skoraði hann sex mörk í tólf leikjum í 2. deildinni.


Njarðvíkingar hafa fengið Aron Snæ Ingason lánaðan frá Fram. Aron er 21 árs gamall og uppalinn í Fram. Hann á að baki 26 leiki og 5 mörk í deild- og bikar með liðinu. Hann hefur spilað fjóra leiki í Lengjudeildinni á þessu tímabili

Njarðvík er í þriðja sæti í 2. deildinni og Reynir í því fjórða svo bæði lið eru með í baráttunni um að komast upp.

Fjallað er vel um félagaskipti í neðri deildum í hlaðvarpsþættinum Ástríðan sem kom inn í morgun. Hægt er að hlusta á þáttinn í hlaðvarpveitum eða í spilaranum hér að neðan.

<b>Ástríðan</b> - Mörg lið að styrkja sig í glugganum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.