30.06.21 - 14:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rafa Benítez tekur við Everton (Staðfest)

Rafa Benitez.

Mynd: EPA

Rafa Benitez.

Mynd: EPA
Everton hefur gengið frá ráðningu á spænska knattspyrnustjóranum Rafa Benítez.
Benítez skrifar undir þriggja ára samning við Everton og mun hann byrja að vinna með liðinu 5. júlí næstkomandi þegar leikmenn snúa aftur úr sumarfríi.

Carlo Ancelotti hætti með Everton eftir síðustu leiktíð til að taka við spænska stórveldinu Real Madrid.
Þetta eru í raun ótrúleg tíðindi vegna þess að Benítez er með mikla tengingu hinum megin í borginni. Hann stýrði Liverpool, helstu erkifjendum Everton, frá 2004 til 2010 og vann Meistaradeildina með félaginu, eftirminilega árið 2005.
Þessi ráðning er umdeild hjá stuðningsmönnum Everton í ljósi tengingu Spánverjans við Liverpool.
Hinn sextugi Benítez hætti störfum hjá Dalian Pro í Kína fyrr á þessu ári. Þar áður stýrði hann Newcastle, Real Madrid og Napoli.
Farhad Moshiri, eigandi Everton, segir að Benitez hafi heillað með þekkingu sinni og reynslu, en einnig með ástríðu sinni fyrir Everton. „Við erum að ráða Rafa því við trúum því að hann muni skila árangri fyrir félagið og stuðningsmenn. Við þurfum að berjast á toppnum og reyna að vinna titla. Rafa er sigurvegari."
Everton hafnaði í tíunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Gylfi Þór Sigurðsson er á mála hjá Everton og verður spennandi að sjá hvaða hlutverk hann fær hjá nýja stjóranum.

Our new manager. pic.twitter.com/1FulLthzyF
— Everton (@Everton) June 30, 2021