30.06.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Sasha Litwin í Víði (Staðfest)

Mynd: Alberto A. Larrea

Mynd: Alberto A. Larrea
Víðir Garði hefur samið við Sasha Litwin út þetta tímabil en hann kemur frá spænska liðinu Fraga.
Litwin er 25 ára gamall og er með ríkisborgararétt í Argentínu og á Spáni.
Hann hefur spilað með Völsungi og Víking Ó hér á landi en hann lék með Völsungi í 2. deildinni á síðasta tímabili og Víking Ó í Inkasso-deildinni árið 2018.
Litwin getur spilað á miðju og í sókninni. Hann kemur til með að styrkja Víði sem er í 8. sæti 3. deildar með 10 stig.