Fotbolti.net
30.06.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Gæti Rashford átt framtíð hjá Man Utd eftir allt?

Marcus Rashford.

Marcus Rashford.

Canon

Mynd: EPA

Mirror segir að Marcus Rashford gæti fengið tækifæri til að endurlífga feril sinn hjá Manchester United eftir jákvæðar viðræður milli félagsins og umboðsmanna leikmannsins.

Rashford er á HM með enska landsliðinu en búst er við því að hann snúi svo aftur á æfingasvæði United. Framtíð hans er í óvissu eftir að hann var á láni hjá Barcelona á síðasta tímabili.

Möguleiki er að Rashford, sem er 28 ára, spili einhverja af þeim sex æfingaleikum sem United er með planaða á undirbúningstímabilinu.
Barcelona er ekki tilbúið að ganga að verðmiða Rashford og United vill helst ekki lána hann þriðja tímabilið í röð. Talað hefur verið um að hann væri ekki í áætlunum United en það gæti breyst miðað við þessa umfjöllun Mirror.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.