fös 30. júlí 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Alfons: Það verður spennandi að sjá hvað gerist
Alfons Sampsted
Alfons Sampsted
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenski landsliðsmaðurinn Alfons Sampsted var að vonum ánægður með 3-0 sigur Bodö/Glimt á Val í Sambandsdeild Evrópu í gær en norsku meistararnir fóru nokkuð örugglega áfram í næstu umferð.

Bodö/Glimt vann fyrri leikinn á Origo-vellinum 3-0 og unnu svo með sömu markatölu í Noregi í gær.

Alfons spilaði allan leikinni í hægri bakverði og var ánægður með framlag liðsins.

„Við spiluðum góðan fótbolta og náðum að stjórna mestum hluta leiksins. Við getum þó enn bætt okkur og það verður spennandi að sjá hvað gerist þegar við spilum á hærra stigi," sagði Alfons eftir leikinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner