Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 30. júlí 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Framkvæmdastjóri Sassuolo: Locatelli vill fara til Juventus
Manuel Locatelli vill fara til Juventus en það þarf að borga rétt verð
Manuel Locatelli vill fara til Juventus en það þarf að borga rétt verð
Mynd: EPA
Giovanni Carnevali, framkvæmdastjóri Sassuolo á Ítalíu, segir að viðræður við Juventus um Manuel Locatelli fari fram í dag en leikmaðurinn vill ólmur komast til liðsins í þessum glugga.

Verðmiðinn á Locatelli hefur svo sannarlega hækkað eftir góða frammistöðu hans á Evrópumótinu með ítalska landsliðinu í sumar.

Locatelli er í eigu Sassuolo en Juventus hefur sýnt honum áhuga síðustu vikur og vill ganga frá kaupum á honum við fyrsta tækifæri.

„Við munum ræða við Juventus í dag um Locatelli. Hann vill fara til Juventus," sagði Carnevali.

„Við yrðum ánægðir með að selja Manuel til Juve en þeir þurfa að borga rétta upphæð. Arsenal lagði fram tilboð í hann og nú er annað enskt félag í baráttunni," sagði hann ennfremur en tók ekki fram hvaða félag.
Athugasemdir
banner