Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 30. júlí 2021 22:01
Victor Pálsson
Stefnir á næstu Ólympíuleika með Frökkum 38 ára gamall
Mynd: Getty Images
Andre-Pierre Gignac stefnir á að spila á Ólýmpíuleikunum árið 2024 eftir að hafa spilað vel með Frakklandi á mótinu í sumar.

Gignac er 35 ára gamall en hann leikur með Tigres í Mexíkó og skoraði fjögur mörk í þremur leikjum á mótinu en Frakkar eru úr leik.

Gignac verður 38 ára gamall er næstu Ólympíuleikar fara fram en hann er hvergi nærri hættur.

Hann vonast til að geta spilað með Antoine Griezmann og Kylian Mbappe á næsta móti eftir þrjú ár.

„Ég mun spila þar til ég verð fertugur en ég sé Antoine sem styður franska liðið mikið á Twitter bjóða sig fram," sagði Gignac.

„Kylian Mbappe hefur einnig sagst vilja spila, við sjáum til. Hver verður sá þriðji?"
Athugasemdir
banner
banner
banner