Fotbolti.net
30.07.26 - 22:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vestri fékk menn fyrir gluggalok (Staðfest) - Misstu einn til fyrrum heims- og Evrópumeistara

Christian Karembeu er forseti liðsins sem Konstantin samdi við.

Christian Karembeu er forseti liðsins sem Konstantin samdi við.

Canon

Mynd: Coca Cola

Lengjudeildin
Vestri náði að þétta raðirnar fyrir lokakaflann í Lengjudeildinni rétt fyrir gluggalok.

Devyn Payne kom frá Ado Den Haag í Hollandi og Marcos Campos kom frá Spáni. Báðir skrifa undir samninga sem gilda út næsta tímabil.

Payne er 21 árs og nokkuð hávaxinn varnarmaður. Hann hefur samkvæmt Transfermarkt ekki spilað meistaraflokksbolta til þessa.
Campos er 19 ára spænskur miðjumaður sem uppalinn er hjá Getafe og var síðast á mála hjá CD Galapagar sem spilar í fimmtu efstu deild Spánar.

Vestri lét hins vegar einn leikmann fara fyrir gluggalok því Konstantin Cheshmedjiev söðlaði um og samdi við Sanremese Calcio í ítölsku D-deildinni. Varnarmaðurinn kom við sögu í ellefu deildarleikjum, skoraði eitt mark og fékk tvö rauð spjöld. Hann er miðjumaður frá Norður-Makedóníu.

Það vekur athygli að forseti Sanremese er Christian Karembeu sem varð heims- og Evrópumeistari með franska landsliðinu árin 1998 og 2000.

Vestri lauk leik í Evrópu í kvöld eftir jafntefli við RFS en samanlagt þriggja marka tap í einvíginu. Vestri er í 7. sæti Lengjudeildarinnar, stigi á eftir Gróttu en Grótta heimsækir einmitt Vestra í næsta leik sem fram fer á mánudag.
Campos.

Campos.

Canon

Mynd: Vestri

Lengjudeild karla

#LiðLmunStig
1Afturelding22+3245
2Þróttur R.22+2543
3Fylkir22+1340
4HK22+1238
5Njarðvík22+938
6Leiknir R.22+128
7ÍR22-628
8Grótta22-727
9Vestri22-1327
10Völsungur22-1226
11Grindavík22-1025
12Ægir22-449
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.