Fotbolti.net
30.08.15 - 13:05
Arnar Geir Halldórsson

Markovic lánaður til Fenerbahce (Staðfest)

Markovic mun leika í Tyrklandi í vetur

Markovic mun leika í Tyrklandi í vetur

Canon

Mynd: Facebook síða Liverpool

Lazar Markovic er genginn til liðs við Fenerbahce á eins árs lánssamningi frá Liverpool.
Liverpool borgaði Benfica 20 milljónir punda fyrir þennan 21 árs gamla Serba síðasta sumar en Markovic byrjaði 11 deildarleiki með Liverpool á síðustu leiktíð og skoraði í þeim tvö mörk.

Hann hefur ekki verið í leikmannahópi Liverpool á þessari leiktíð en þrátt fyrir það hefur Brendan Rodgers sagt að Markovic eigi framtíð á Anfield.

Fenerbahce hefur farið mikinn á leikmannamarkaðnum í sumar en liðið keypti til að mynda Robin van Persie og Nani frá Man Utd.

Hoşgeldin Lazar Markovic! (@LMarkec50) pic.twitter.com/uPMIlU2heF

— Fenerbahçe SK (@Fenerbahce) August 30, 2015





Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.