30.08.26 - 19:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Orðlaus yfir Bruno - „Gæti ekki gert neitt af þessu án þeirra"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bruno Fernandes átti stórleik fyrir Man Utd þegar hann skoraði þrennu í 5-2 sigri á Ipswich í dag.
Fernandes var verðlaunaður í vikunni en leikmenn deildarinnar völdu hann besta leikmann síðasta tímabils þar sem hann lagði upp 21 mark. Enginn hefur lagt upp jafn mörg mörk á einu tímabili.

„Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig sjálfan en ég geri þetta með liðinu því ég gæti ekki gert neitt af þessu án þeirra hjálpar. Auðvitað var þetta frábær vika og að enda með sigri á heimavelli í dag var risastórt," sagði Fernandes.
Luke Shaw hrósaði Fernandes og Kobbie Mainoo.
„Ég er eiginlega orðlaus yfir Bruno. Hann er svo góður leikmaður. Ég vil tala um Mainoo. Hann var í heimsklassa í dag. Hvernig hann stjórnaði leiknum og keyrði okkur áfram. Ég veit að Bruno skoraði þrennu en ég myndi segja að Mainoo hafi verið maður leiksins," sagði Shaw.