30.08.26 - 14:23
Brynjar Ingi Erluson
Van Dijk vill ekki missa Gakpo en er spenntur fyrir Barcola - „Hvað heldur þú?“

Van Dijk vill ekki missa Gakpo

Mynd: EPA

Bradley Barcola er á leið til Liverpool

Mynd: EPA

Van Dijk vill ekki missa Gakpo

Mynd: EPA
Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, segist ekki vilja missa Cody Gakpo frá félaginu en á sama tíma er hann ótrúlega spenntur fyrir franska landsliðsmanninum Bradley Barcola.
Enskir fjölmiðlar greina frá því að Manchester City sé í viðræðum við Liverpool um kaup á Cody Gakpo.
Hollendingurinn hefur verið sterklega orðaður við Tottenham undanfarnar vikur en nú stefnir allt í að Senegalinn Iliman Ndiaye gangi í raðir Lundúnafélagsins. City hefur því blandað sér í baráttuna um Gakpo sem Liverpool er reiðubúið að selja fyrir 85 milljónir punda.
Virgil van Dijk, samlandi og liðsfélagi Gakpo, var spurður eftir 2-2 jafnteflið gegn Nottingham Forest hvort hann vildi halda honum hjá Liverpool. Svarið var skýrt.
„Hvað heldur þú? Hann er frábær leikmaður og mér finnst að við eigum að halda slíkum leikmönnum. Sjáum hvað næstu dagar bera í skauti sér. Ég vil ekki aðeins halda honum vegna þess að hann er frábær leikmaður, heldur er hann líka vinur minn og mjög mikilvægur fyrir liðið,“ sagði Van Dijk.
Á sama tíma vinnur Liverpool að kaupum á Barcola frá Paris Saint-Germain fyrir 123 milljónir punda. Búist er við að hann gangi í raðir félagsins á næstu dögum og Van Dijk er spenntur fyrir mögulegri komu Frakkans.
„Hann er góður leikmaður og mjög hraður. Ég man eftir marki sem hann skoraði gegn Chelsea á síðasta tímabili. Ef hann kemur hingað verður tekið á móti honum opnum örmum.“
„Það er enginn vafi á því að félag eins og Liverpool er mjög aðlaðandi fyrir bestu leikmennina. Þetta er eitt stærsta félag heims og við vitum öll að liðið er að ganga í gegnum ákveðna umbreytingu. Annaðhvort viltu vera hluti af henni eða ekki.“
„Það skiptir sköpum að bæta meiri gæðum við hópinn og við sjáum hvað gerist á næstu dögum. Þegar glugginn lokar á þriðjudag þurfum við að vera tilbúnir að berjast um alla titla án nokkurrar eftirsjár,“ sagði Van Dijk.