Fotbolti.net
30.08.26 - 16:34
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Styrktarþjálfari Vals fékk rautt: Meinum ekkert illt

Auglýsing
Styrktarþjálfari Vals fékk rautt: Meinum ekkert illt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

„Léttir að ná inn markinu“ sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir 2-2 jafntefli gegn FH á Hlíðarenda. Lillý Rut Hlynsdóttir jafnaði fyrir Val á 93. mínútu og tryggði heimakonum mikilvægt stig.

Lestu um leikinn: Valur 2 - 2 FH

„Mér fannst þetta vera hörku leikur, skemmtilegur leikur. Tilfinningin núna er að jafntefli er sanngjörn úrslit. En mér fannst margt flott í okkar leik og FH eru hrikalega öflugar. Það er einhvern veginn ný sókn eftir ný sókn og það skiptir engu máli hvort að það séu kominn fimmtíu og tvær, tíu eða níutíu á klukkuna, FH er alltaf fulla ferð áfram."

„Mér fannst þær ekki opna okkur stanslaust. Við þjálfarar horfum alltaf á leiki eftir á og sjáum þá aðra mynd á leiknum. Mér fannst við alveg þéttar og berjast, mér fannst alveg ganga svona upp það sem við vildum. Mér fannst líka mörkin svolítið ódýrari en hefði kosið, en mér fannst við líka komast í þau færi sem við lögðum upp með að komast í sem var mjög jákvætt."

Valur sigraði í síðustu umferð og gerðu jafntefli gegn FH sem er í 2. sæti. Er hægt að byggja ofan á þetta?

„Mér finnst ég sjá eitthvað smá skref fram á við. Deildin er ótrúleg, hver leikur hefur sitt líf og ef þú ert ekki tilbúin sama hver andstæðingurinn er þá fer leikurinn illa, það er bara svoleiðis."

Hilmar Andrew McShane, styrktarþjálfari Vals, fékk rautt í dag fyrir tuð.

„Tilfinningar, ósáttur við eitthvern dóm og missti sig í tilfinningum, það er bara svoleiðis."

„Maður vill stundum hafa tilfinningar í sportinu, ég veit að það er ekkert þægilegt fyrir dómara að heyra stanslaust öskur. Við erum líka að sýna okkar tilfinningar og meinum ekkert illt."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.