Fotbolti.net
30.08.26 - 20:05
Magnús Atlason

Rúnar: Sköpuðum alltof lítið

Auglýsing
Rúnar: Sköpuðum alltof lítið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram og KA gerðu 2-2 jafntefli upp í Úlfarsárdal. Fótbolti.net náði Rúnari Kristinssyni, þjálfara Fram, í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 2 KA
"Ég get ekki kvartað, við áttum ekkert sérstakan dag og KA menn voru öflugir, skoruðu tvö góð mörk úr skyndisóknum."

Fram fékk 12 hornspyrnur í leiknum en þeir náðu ekki að nýta sér þær. "Er næsta mál á dagskrá á æfingasvæðinu að stúdera þær (hornspyrnurnar)"

"Neinei ég held við þurfum ekkert að stúdera þær sérstaklega. KA eru með stóra og sterka varnarmenn og sendingarnar inn í vítateiginn úr hornspyrnunum þurfa að vera góðar til þess að þú getur skapað eitthvað og við sköpuðum einhverja hættu einu sinni tvisvar."

"Það sýnir að við höfum einhverja yfirburði í þessu, að sækja hornspyrnur og sækja á KA menn og búa til sóknir en við sköpuðum alltof lítið."

Heimamenn kölluðu eftir víti undir lok leiks. "Geturðu eitthvað tjáð þig um það?"

"Nei, Ægir er bara að hlaupa inn í teiginn og það verða einhver handalögmál þarna."

"Dómarinn mat þetta svona og hans aðstoðarmenn sem hjálpuðu honum töluvert í leiknum en kannski ekki eins oft og ég hafði viljað."

Fram fékk að þola þungt 0-5 tap á heimavelli gegn Víkingum í fyrri umferðinni. Næsti leikur Fram er gegn toppliðinu.

"Spennandi verkefni, Víkingar voru frábærir á móti okkur þegar við spiluðum við þá í Úlfarsárdalnum. Við vorum fínir í 30 mínútur á meðan það var 0-0 en eftir að þeir skoruðu áttum við ekki break þannig að við þurfum að reyna að læra af því."

Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.