Fotbolti.net
29.08.26 - 20:30
Sverrir Örn Einarsson

Gakpo vill fara frá Liverpool

Cody Gakpo

Cody Gakpo

Canon

Mynd: EPA

Cody Gakpo vill yfirgefa herbúðir Liverpool og ganga til liðs við Manchester City. Þetta kemur fram hjá fjölmiðlamanninum David Ornstein hjá The Athletic. Sömu fréttir herma að viðræður séu þegar hafnar á milli félaganna um kaupverð á leikmanninum.
Hinn 27 ára Gakpo hefur einnig verið orðaður við Tottenham að undanförnu en hefur komist að niðurstöðu um að halda á Etihad leikvanginn þess í stað.

Möguleikinn á þessum viðskiptum er tilkominn vegna væntanlegrar komu Bradley Barcola til Liverpool frá PSG. Auk þess lét Andoni Iraola stjóri Liverpool þau orð falla um Gakpo að hann gæti ekki útilokað neitt um framtíð leikmannsins.

Gakpo hefur leikið alls 180 leiki fyrir Liverpool í öllum keppnum og gert í þeim 50 mörk og lagt upp 23 önnur en er nú líklegur til þess að róa á önnur mið fyrir gluggalok.

Heimild: The Athletic

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.