30.08.26 - 13:22
Brynjar Ingi Erluson
Stórkostleg byrjun Chelsea - Lavia opnaði markareikninginn

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Xabi Alonso og lærisveinar hans í Chelsea fara frábærlega af stað á tímabilinu en liðið var komið í 2-0 gegn Brighton eftir tæplega fimmtán mínútna leik.
Belgíski miðjumaðurinn Romeo Lavia skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið er hann potaði boltanum inn í markið eftir hornspyrnu.
Hann er að spila 46. leik sinn fyrir félagið og loksins kom fyrsta markið.
Sjáðu markið hjá Lavia
Annað markið gerði síðan Pedro Neto eftir laglegan undirbúning Morgan Rogers. Chelsea er á flugi og lítur ansi vel út í fyrstu leikjum tímabilsins.
Sjáðu markið hjá Neto