Fotbolti.net
30.08.26 - 12:44
Brynjar Ingi Erluson

Liverpool aftur í viðræður við Brighton

Yankuba Minteh gæti endað hjá Liverpool

Yankuba Minteh gæti endað hjá Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Liverpool hefur hafið viðræður við Brighton að nýju um kaup á Gambíumanninum Yankuba Minteh. Blaðamaðurinn Foday Manneh greinir frá þessu.
Liverpool lagði á dögunum fram tvö tilboð í Minteh sem Brighton hafnaði. Síðara tilboðið hljóðaði upp á um 60 milljónir punda og í kjölfarið fór Liverpool að skoða önnur skotmörk, þar á meðal Ismaila Sarr hjá Crystal Palace.

Manneh, sem hefur fjallað ítarlega um mál Minteh, Sarr og fleiri afrískra leikmanna, segir Liverpool nú hafa hafið viðræður við Brighton að nýju. Þær gangi vel og séu bæði félög vongóð um að ná samkomulagi á næstu dögum.

Minteh er 22 ára en stuðningsmenn Liverpool þyrftu að bíða eftir að sjá hann í búningi félagsins ef af kaupunum verður. Hann glímir við meiðsli og verður frá keppni næstu tvo mánuði.

Gambíumaðurinn gekk til liðs við Brighton frá Newcastle United fyrir tveimur árum og hefur komið að nítján mörkum í 71 leik á fyrstu tveimur tímabilum sínum hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.