30.08.26 - 12:16
Brynjar Ingi Erluson
Messi fór á kostum í nótt

Lionel Messi er ótrúlegur

Mynd: EPA

Lionel Messi er ótrúlegur

Mynd: EPA
Lionel Messi, einn besti ef ekki besti leikmaður í sögu fótboltans, skoraði fernu í 7-1 stórsigri Inter Miami gegn Montreal í MLS-deildinni í nótt.
Argentínumaðurinn er orðinn 39 ára en er ekkert farinn að gefa eftir og heldur áfram að raða inn mörkunum.
Messi skoraði annað mark Inter Miami beint úr aukaspyrnu, þótt lengi hafi verið óvíst hvort hann fengi markið skráð á sig. Boltinn hafði viðkomu í varnarmanni og breytti um stefnu áður en hann fór af markverðinum og í netið.
Markið er skráð sem sjálfmark á fjölmörgum síðum á meðan MLS-deildin skráir það á Messi.
Hann skoraði annað mark sitt á 52. mínútu áður en Luis Suarez bætti fjórða marki Miami við eftir stoðsendingu frá Messi á 80. mínútu. Messi fullkomnaði þrennuna aðeins þremur mínútum síðar.
Alexander Shaw skoraði sjötta mark Miami áður en Messi rak smiðshöggið seint í uppbótartíma og fullkomnaði fernuna. Inter Miami er í öðru sæti Austurdeildarinnar með 42 stig eftir 22 leiki.

Messi recorded 4 goals and an assist as @InterMiamiCF dominated CF Montreal, 7-1. ???? pic.twitter.com/0cPkV40Jr6
— Major League Soccer (@MLS) August 30, 2026