Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. september 2020 19:56
Ívan Guðjón Baldursson
Deildabikarinn: Sterling og Torres afgreiddu Burnley
Mynd: Getty Images
Burnley 0 - 3 Man City
0-1 Raheem Sterling ('35)
0-2 Raheem Sterling ('49)
0-3 Ferran Torres ('65)

Burnley tók á móti Manchester City í úrvalsdeildarslag í deildabikarnum í dag og átti Raheem Sterling stórleik þar sem hann skoraði tvö og lagði eitt upp.

Man City gjörsamlega stjórnaði fyrri hálfleiknum og skoraði Sterling eftir lága fyrirgjöf frá Benjamin Mendy.

City menn voru óheppnir að tvöfalda ekki forystuna fyrir leikhlé en Sterling sá um það í upphafi síðari hálfleiks eftir stoðsendingu frá Ferran Torres.

Heimamenn sýndu lit og fengu fín færi en Torres gerði út um viðureignina með þriðja marki City á 65. mínútu.
Athugasemdir
banner
banner