Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. september 2021 17:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Yfirlýsing frá Aroni Einari: Settur saklaus til hliðar í nýrri útilokunarmenningu KSÍ
Icelandair
Aron Einar Gunnarsson
Aron Einar Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron og Arnar Viðarsson.
Aron og Arnar Viðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú rétt í þessu barst yfirlýsing frá landsliðsfyrirliðanum Aroni Einar Gunnarsson í kjölfarið á þeim tíðundum að hann var ekki valinn í íslenska landsliðshópinn fyrir komandi verkefni.

Landsliðsþjálfarinn Arnar Viðarsson sagði á fundinum að hann hafi ákveðið að velja ekki Aron Einar í hópinn í dag. Aron Einar segir m.a. í yfirlýsingunni: „Ég get aðeins dregið þá ályktun að komandi sjálfkjörin stjórn KSÍ hafi umboðslaus beitt sér fyrir því að mér yrði slaufað eins og fram hefur komið í fréttum á DV.is." Aron segist ekki hafa beðið Arnar um trúnað um af hverju hann sé ekki valinn.

Aron Einar kemur inn á atburð sem hefur verið til umræðu á samfélagsmiðlum að undanförnu. Sá atburður á að hafa átt sér stað í Kaupmannahöfn árið 2010. „ Ég hef ekki fengið tækifæri til að ræða málið formlega við KSÍ, eða verið gefinn kostur á standa á rétti mínum gagnvart ávirðingunum, og því sárnar mér þessi fyrirvaralausa ákvörðun um að verða settur út úr liðinu," sagði Aron.

„Um leið og ég hafna öllu ofbeldi þá lýsi ég því yfir að ég hef aldrei gerst brotlegur gagnvart neinum eða neinni."

Í lokin segir Aron svo að hann hafi óskað eftir því við lögregluyfirvöld að gefa skýrslu um kvöldið fyrir ellefu árum.

Yfirlýsing Arons:
Settur saklaus til hliðar í nýrri útilokunarmenningu KSÍ

Eins og kom fram í fréttum í dag var ég ekki í hópi leikmanna sem Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska landsliðsins, valdi fyrir komandi landsleiki. Sú ákvörðun kemur í kjölfar þess að ég lýsti því yfir gagnvart KSÍ að ég gæfi kost á mér, væri í góðu formi og búinn að jafna mig að fullu af nýlegum veikindum. Að auki lýsti ég því yfir að ég hefði ekkert gert af mér og var þá að vísa í nýlega umræðu um meintan ofbeldiskúltúr innan KSÍ.

Á blaðamannafundi var hins vegar spurningum um ástæður valsins lítið svarað. Ég get aðeins dregið þá ályktun að komandi sjálfkjörin stjórn KSÍ hafi umboðslaus beitt sér fyrir því að mér yrði slaufað eins og fram hefur komið í fréttum á DV.is. Árangur landsliðsins hefur ekki verið þannig að skynsamlegt sé að setja reyndustu mennina til hliðar og því er það ekki ástæðan. Ég hef heldur ekki beðið Arnar Þór um trúnað um þær ástæður að hann velji mig ekki.

Fyrir mig, og fjölskyldu mína og vini sem þekkja til mín, er mjög sárt að KSÍ, sem ég hef í 97 landsleikjum gefið alla mína krafta skuli setja mig til hliðar vegna krafna sem byggjast á óljósum orðrómi um landsliðsmenn. Þetta er óverjandi staða.

Á samfélagsmiðlum hefur verið til umræðu atburður sem sagt er að hafi átt sér stað í Kaupmannahöfn 2010. Ég hef ekki fengið tækifæri til að ræða málið formlega við KSÍ, eða verið gefinn kostur á standa á rétti mínum gagnvart ávirðingunum, og því sárnar mér þessi fyrirvaralausa ákvörðun um að verða settur út úr liðinu. Í ofanálag hefur lögregla aldrei haft samband við mig vegna nokkurs máls. Ég hef engar tilkynningar fengið um að ég hafi á einhverjum tímapunkti verið undir grun og aldrei verið boðaður í yfirheyrslu.

Sem fyrirliði hef ég fyrir löngu lært að axla ábyrgð og það sem nú viðgengst er slaufunarmenning eða útilokunarmenning og hana ætti ekki að líða. Um leið og ég hafna öllu ofbeldi þá lýsi ég því yfir að ég hef aldrei gerst brotlegur gagnvart neinum eða neinni. Ég ætla mér ekki að vera meðvirkur gagnvart dómstól götunnar varðandi atvik sem á að hafa átt sér stað fyrir ellefu árum síðan. Hafi einhver eitthvað út á mig að setja þá bið ég viðkomandi vinsamlegast að hlífa mér ekki, ásaka mig frekar og nafngreina og gefa mér kost á að verja mig. Það er heiðarlegt.

Vegna þessa alls hef því ákveðið að óska eftir því við lögregluyfirvöld að fá að gefa skýrslu um þetta kvöld fyrir ellefu árum.

Aron Einar Gunnarsson

Athugasemdir
banner
banner
banner