Fotbolti.net
30.09.23 - 13:50
Aksentije Milisic

Karólína Lea á skotskónum þegar Leverkusen skoraði sex

Karólína skoraði tvö.

Karólína skoraði tvö.

Canon

Mynd: Mirko Kappes

Kvennaboltinn

Bayer Leverkusen tók á móti Nurnberg í þýsku úrvalsdeildinni í dag og var Karólína Lea Vilhjálmsdóttir í byrjunarliði Leverkusen.

Hún átti frábæran leik í öruggum 6-0 sigri en Karólína skoraði tvennu og lagði upp eitt mark. Nikola Karczewska gerði þrennu í liði Leverkusen í sigri sem var síst of stór.

Karólína spilaði 68 mínútur í dag en ásamt því að skora tvö og leggja upp eitt þá fékk hún gult spjald. Staðan var 5-0 þegar hún var tekin af velli. Sigurinn í dag var sá fyrsti hjá Leverkusen á tímabilinu en tvær umferðir eru búnar af þýsku deildinni.

Karólína er á láni hjá Leverkusen frá Bayern Munchen og því ljóst að hún fer mjög vel af stað.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.